Bóna, Bóna, Bóna, !!!

Annað 3 viðbrögð »

Jæja þá er loksins komið að því!

Eins og margir hafa tekið eftir þá eru bílarnir okkar orðnir frekar skítugir og bítur þvotta kústurinn lítið á skítinn orðið.

Á morgun, þriðjudagskvöld, á "slaginu" 20:00 munu tuskur, kústar og ryksugur fara á loft og verður hafist handa við að "sjæna" bíla sveitarinnar.

Ef þú kannt að beita bóninu þá kemurðu og hjálparð til, nú ef þú kannt ekki að bóna þá geturðu tekið ryksuguna í hönd ;D . Verðum enga stund með þessa 4 bíla ef nógur mannskapur fæst.:>>

kv.
Brynjólfur

ps. Það kom til mín um daginn Ársælingur og kvartaði yfir því hvað bílar okkar væru skítugir :no:

Jöklanámsskeið um helgina

Annað 11 feedbacks »

Eins og við fengum E-Mail um verður jöklanámskeið um helgina, búnaðarlisti:

Ætlast er til að hver þátttakandi sé með eftirfarandi útbúnað með sér

               Sigbelti
               Göngubrodda
               Gönguexi
               Hjálm
               4 læstar karabínur (helst perululaga)
               4 ólæstar karabínur (hafið a.m.k. 2 af sömu tegund)
               2x 7m af 7mm prussic (passa að hafa hann ekki of stífan)
               2-faldan (eða 3-faldan) saumaðann sling
               2 ísskrúfur (hugsanlega hægt að sameinast um þær)
Trissuhjól og klifuraxir (ef þátttakendur eiga)

               Skóflu
               Snjóflóðastöng
               Ýlir

               Sólgleraugu/sólvörn
               Skíðagleraugu

               Fatnað til ferðamennsku að vetrarlagi

Spurning að fara raða sér í tjöld.

Páskaferð - Atkvæðagreiðsla

Annað 24 viðbrögð »

Hin hávirðulega ferðanefnd sem skipuð var síðastliðinn þriðjudag, Stefáni Má Ágústssyni og Hauki Eggertssyni, leggur fram til atkvæðagreiðslu eftirfarandi þrenn aðalferðaplön.

A Holtavörðuheiði - Arnarvatnsheiði - Kjölur
http://www.flickr.com/photos/26122006@N02/3356581574/sizes/o/in/photostream/
B Þjórsárver - Gnúpverjaafréttur
http://www.flickr.com/photos/26122006@N02/3356581880/sizes/o/in/photostream/
C Strútslaug - Emstrur - Einhyrningur
http://www.flickr.com/photos/26122006@N02/3356582116/sizes/o/

Miðað er við að gist sé allar nætur í eða við skála og kvöldverður því sameiginlegur. Taka þarf með sér tjalddýnu og bívak. Þá eru allar leiðir frekar sléttar og því kjörnar fyrir púlkur.

Þá leggur nefndin til að sem varaplan, verði snjóalög hvergi viðunandi verði valið á milli

I 4 til 5 daga jöklaskíðaferðar (verður útfært síðar).
II 4 til 5 daga bækistöðvarferðar í Skaftafell, hvar mikið úrval er af efnilegum tindum til að ganga og klifra.
Varaplön hafa ekki verið útfærð í smáatriðum.

Óskað er eftir að eigi síðar en á þriðjudaginn n.k. hafi allir þeir sem hug hafa á að fara í ferðina raðað möguleikum A, B og C í þrjú sæti og gert upp á milli varaplans I og II. Dæmi: Aðalplan A1, B2 og C3 og varaplanið er II.

Mælt er til þess að atkvæðagreiðslan og tilkynning um faratökuáhuga fari fram á Sjálfheldu.net undir athugasemdum. Ef síðan virkar ekki skal sendur tölvupóstur á undirritaðan, haukureg hjá gmail.com

Þar sem almennur undirbúningur þátttakenda ætti að vera nokkuð svipaður óháð því hvaða leið verður fyrir valinu, áskilur ferðanefnd sér rétt til að víkja frá vinsælustu leið til næstvinsælustu eða jafnvel síst vinsælu ef eftirfarandi þættir koma verulega við sögu.

A Skortur á snjó, ófært fyrir FBSR4 og FBSR5 að eða nálægt Kili, sterk ríkjandi austanátt eða önnur verulega óhagstað veðurskilyrði.
B Skortur á snjó, ófært að Sóleyjarhöfða, Sóleyjarhöfðavað ófært bílum eða skíðandi, sterk SV átt eða önnur verulega óhagstæð veðurskilyrði.
C Skortur á snjó. Jafnframt áskilur nefndin sér rétt til að snúa C planinu við og fara frá SV til NA verði VSV áttir mjög ríkjandi. Önnur verulega óhagstæð veðurskilyrði.

En nánar um aðalkosti.

A Holtavörðuheiði - Arnarvatnsheiði - Kjölur
http://www.flickr.com/photos/26122006@N02/3356581574/sizes/o/in/photostream/

Dagur 1 Holtavörðuheiði - Núpsheiðarskáli fyrsta dagleið upphitun í ca. 20 km. Keyrt á Holtavörðuheiði snemma morguns. Komið við í Skútagili eftir litla 5 km og nesti étið og skjóls leitað eftir þörfum. Eftir 12 km er komið í skálann við Króksvatn, Húksheiðarskála, hvar enn er hægt að snæða nesti og endurskipuleggja sig áður en lagt er í síðasta áfangann að Núpsheiðarskála.

Skútagil. Á svæðinu er gangnamannaskáli við Skútagil á vegum hreppsins með gistirými fyrir 20 manns og aðstöðu fyrir hesta.
Húksheiðarskáli. Á svæðinu er gangnamannaskáli á vegum hreppsins með gistirými fyrir 12 manns og aðstöðu fyrir hross. Byggt var við skálann fyrir skömmu og gæti hann tekið fleiri nú.
Núpsheiðarskáli við Urðhæðir. Á svæðinu er gangnamannaskáli undir Urðhæðum á vegum hreppsins með gistirými fyrir 22 manns og aðstöðu fyrir hross.

Dagur 2 Núpsheiðarskáli - Áfangatjörn (Fljótsdrög) ca. 27 km. Haldið áleiðis austur, komið við í Úlfsvatnsskála eftir 5 km og aftur Álftakróksskála eftir 12 km áður en lagt er í síðasta áfangann yfir í Neðri Fljótsdrög.

Úlfsvatnsskáli norðan Úlfsvatns, Hvítársíðuhr. Gangnamannaskáli í eigu
Háls- og Reykholtsdalshreppa, byggður 1955 og endurbættur 1991. Gistirými fyrir 20 manns og aðstaða fyrir hross.
Álftakrókur við Núpavatn, Hvítársíðuhr. Gangnamannaskáli sem er sameign Háls- og Reykholtsdalshrepps, byggður 1955 og byggt við hann 1982. Gistirými fyrir 20-30 manns og aðstaða fyrir hross.
Fljótsdrög, Hvítársíðuhr. Gangnamannaskáli byggður 1977 á vegum Upprekstrarfélags Ás- og Sveinsstaðahrepps, en er staðsettur í Mýrasýslu. Þar er gistirými fyrir 16 manns og aðstaða fyrir 30 hross.
Skálinn er nýttur fyrir ferðaþjónustu á sumrin, m.a. vegna hestaferða.
Hann gæti nýst sem áningarstaður á gönguleið umhverfis Langjökul.

Dagur 3 Áfangatjörn - Hundadalir - Hveravelli Ca. 32 km. Erfiðasti dagurinn. Haldið austur í gegnum Strýtuhraun, og norðurjaðri Jökulstallanna fylgt uns komið er í Hundadali og síðan niður með Dauðsmannskvísl út að Hveravöllum hvar langþráð bað tekur við. Miðað er við að hitta bílana á Hveravöllum.

Dagur 4 Hafi bílar ekki komist alla leið er gengið á móti þeim til norðurs eða suðurs, en annars tekinn stuttur dagur um Strýtur í Kjalhrauni, Grettishelli, Beinhól og endað á Fjórðungsöldu þar sem er hringsjá fjórðungamörk og hæsti punktur Kjalvegar. Brunað í bæinn til norðurs eða suðurs eftir því sem við á.

Ef öruggt er að bílar komast á Kjalveg, er hægt að stytta fyrstur tvær dagleiðir (skálar eru allir lausir á Arnarvatnsheiði skv. upplýsingum), og farið í Húksheiðarskála á 1. degi, Álftavatnskrók á 2. degi og í Fljótsdrög á 3. degi og Hveravelli á 4. degi. Einnig að leggja af stað á miðvikudegi og fara í skálann við Skútagil á 0. degi, Úlfsvatn á 1. degi, Fljótsdrög á 2. og síðan aðalplani fylgt.

B Þjórsárver - Gnúpverjaafréttur
http://www.flickr.com/photos/26122006@N02/3356581880/sizes/o/in/photostream/

Dagur 1 Ferðin hefst með nokkuð löngum ströngum akstri að Sóleyjarhöfðavaði á fimmtudag. Vaðið verður síðan annað hvort keyrt, ef það er autt en annars farið yfir á skíðum og kofinn við Bólstað skoðaður. Haldið verður í náttstað í Tjarnarverum eftir, stutta 5 km, hvar gist verður í hesthúsi og ((ó)vistlegum) skála.

Sóleyjarhöfði í Þjórsárverum, Gnúpverjahr. Gamall kofi sem er opinn.
Tjarnarver í Þjórsárverum, Gnúpverjahr. Þessi staður fer hugsanlega undir vatn ef Þjórsá verður stífluð við Norðlingaöldu, gangnamannahús og hesthús í eigu hreppsins.

Dagur 2 Haldið út Þjórsárverin meðfram Þjórsá og eftir hinni fornu og vörðuðu Sprengisandsleið suður Norðurleit. Lónsstæði fyrirhugaðrar Norðlingaöldu skoðað. Farið framhjá Kjálkaverskofa. Eftir ca. 22 km er komið í skálann í Bjarnalækjarbotnum.

Bjarnalækjarbotnar, Gnjúpverjahr. Gangnamannahús í eigu Gnúpverja er á staðnum.

Dagur 3 Haldið suður, reiðleiðinni fylgt að Dalsá og Dalsárkofa, en síðan vikið að Þjórsá og fossarnir Dynkur og jafnvel Gljúfurleitarfoss skoðaðir. Haldið áfram suður Gljúfurleit og eftir rúma 20 km komið í náttstað við samnefndum skála.

Gljúfurleit, Gnúpverjahr. Gangnamannahús í eigu Gnúpverja er á staðnum.

Dagur 4 Haldið suður Í Hólaskóg með mögulegri viðkomu hjá næsthæsta fossi landsins Háafossi og Granna. Þar farið í gufu og gist eða brunað í bæinn. Lengd 23 til 25 km. Verði snjóskortur koma bílar til móts við okkur.

Ferðin er meira og minna öll niður á móti, en byrjað er í 600 m hys og farið niður í 250.

C Strútslaug - Emstrur - Einhyrningur
http://www.flickr.com/photos/26122006@N02/3356582116/sizes/o/

Dagur 1 Keyrt er að fimmtudegi austur að Skaftá og í Hólaskjól. Það er Syðri Ófæru er fylgt yfir í Álftavatnskrók og samnefndan skála Útivistar hvar gist er. Lengd ca. 8 km.

http://www.utivist.is/skalar/?ew_news_onlyarea=content1&ew_news_onlyposition=0&cat_id=1129&ew_0_a_id=137

Dagur 2 Farið er vestur á bóginn norðan Svartahnúksfjalla og komið að Strútslaug eftir 15 km og baðað sig þar eftir þörfum. Síðan verða síðustu 5 km farnir í Skála Útivistar við Strút.

http://www.utivist.is/skalar/?ew_news_onlyarea=content1&ew_news_onlyposition=0&cat_id=1129&ew_0_a_id=138

Dagur 3 Farið vestur hálsa ofan í Hrútagil og Mælifellssandur og síðar Emstrur krúsaðar út að Brúnni yfir Innri Emstur eftir 17 km. Þaðan verður haldið í einn af þremur eftirfarandi skálum: 1 Emstrur, 2 Hattver, 3 Mosar og gist. Á leiðinn má leita skjóls í skála FÍ við Hvanngil (krókur) bresti á með illviðrum. Samtals 23 til 25 km.

Efri-Botn í Emstrum, Hvolhr. Á staðnum er gönguskáli FÍ, áningarstaður á gönguleið á milli Landmannalauga og Þórsmerkur.
http://www.fi.is/skalar/emstrur/

Hvanngil við Fosskvísl, Ása- og Djúpárhr. Á staðnum er leitarmannahús í eigu hreppanna. Áningarstaður á göngu- og reiðleiðum á svæðinu.
http://www.fi.is/skalar/hvanngil/

Markarfljótsskáli í Mosum, Hvolhr. Á staðnum er gangnamannahús í eigu Hvolhrepps og Rangárvallahrepps.

Dagur 4 Farið yfir Markarfljót við Mosa og haldið niður Einhyrningsbrekkur til móts við bílana. Komið við í Bólstað eftir 8 ferð frá Markarfljóti.

Eins og fyrr segir er hægt að snúa þessu plani við og halda frá Einhyrningi að Hólaskjóli.

Bólstaður við Einhyrning, Fljótshlíðarhr. Á staðnum er gangnamannahús í eigu hreppsins. Áningarstaður á reiðleið inn á Emstrur á Fjallabaksleið
syðri.

Telemark festival

Fréttir 21 viðbrögð »

Næst á dagskrá er telemark festival á Akureyri sem er næstkomandi helgi. Við erum nokkur úr tím sjálfhelda sem ætlum að mæta á svæði þó fátítt sé um frelsun hæla. Skellum okkur í fjallið og hvetjum okkar nýliðaþjálfara og njótum frelsisinns.

tjaldað í hlíðafjalli

Í óstaðfestum fréttum hefur forsvarsmaður tjalsvæðisins í Hlíðafjalli tilkynnt nægjanlegt pláss til tjöldunar þessa helgi þrátt fyrir mikla aðsókn skíðamanna í fjallið. Hann segir að mikil aukning sé á að fólk nýti sér tjaldaðstöðuna enda aðstæður til fyrirmyndar.

Smá pepp

Staðfestið komu ykkar í Hlíðarfjall í komment. Góð skíðasaga má fylgja B)

Heyrst hefur...

Partý 5 viðbrögð »

... að það verði metmæting hjá B2 á árshátíðinni.


Hver veit nema gítarinn verði með í för á laugardag.

Contact. ©2010 by admin. blog software / web hosting / monetizing.
Design & icons by N.Design Studio. Skin by Tender Feelings / Evo Factory.