Týnt og fundið

Annað 2 viðbrögð »

Týndi einhver súlu/hælapoka í sprungubjörguninni? hann er ca. 30 cm á lengdina.

og fyrir þau sem voru í páskaferðinni.. hafið þið nokkuð rekist á
hanska frá 66°N (flís að innan) ?

endilega látið vita takk fyrir :D

Björgunarafrek í Þórsmörk

Annað 4 viðbrögð »

Fréttir hafa borist um að meðlimir hins frábæra útivistarhóps Sjálfhelda.net hafi unnið mikið þrekvirki þegar þeir björguðu frönskum ferðamanni sem hafði lent í sjálfheldu í Krossá um páskana. Ekki er vitað með vissu hvað ferðamaðurinn var að gera þarna lengst inneftir en vísbendingar benda til að hann hafi verið í ísklifri í Tungnakvíslarjökli fyrr um daginn. Svo virðist vera að hann hafi verið búinn að fljóta niður með ánni nokkuð langan tíma. Var ferðalangurinn bæði blautur og kaldur.

Þessi einstaka mynd náðist af frakkanum rétt áður enn honum var loks bjargað.
frakki

Páskaferð, hugmynd að endurskipulagi

Annað 11 viðbrögð »

Sökum lélegra þáttöku í B2-páskaeggjagönguskíðaferðinni, óvissu með snjóalög, veseni með að redda tveim jeppum. Ætlum við 6 sem erum skráð í ferðina að varpa fram endurskipulagi á annars mjög vel skipulagðri ferð. Vonumst við til þess að fleiri sjái sér fært að kíkja við einhverja daga og skemmta sér með okkur.

Nýtt plan er því:

2009-04-09 Fimmtudagur
Keyra útúr bænum "snemma", mæting niður í sveit kl 9.
Halda í átt að Þórsmörk.
Munda brodda, ísaxir og línur í Gígjökli.
Fara í Bása og grilla í liðinu.
Gist í Básum.

2009-04-10 Föstudagur
Farið upp á Fimmvörðuháls með gönguskíði á bakinu.
Haldið útá Mýrdalsjökul með gögnuskíði undir fótum.
Hluti hóps gistir uppá jöklinum,
hinn hópurinn fer aftur niður í Bása.

2009-04-11 Laugardagur
Haldið niður í Bása til að grilla meira í liðinu.

2009-04-12 Sunnudagur
Tungnakvíslarjökull skoðaður og fleiri ísaxarbardagar háðir.
Hugað að heimferð.

Heyrst hefur að þessi endurskipulagnin hafi þegar lokkað að sér tvo úr B2 í einn dag. Með von um að fleiri sjái sér fært að mæta.

Helgarfrí

Annað 2 viðbrögð »

Alveg merkilegt hvað skólinn slítur helgunum!

Hvað er fólkið að gera?

Einhver er á leið í Esjuna í dag að rigga upp sistemi og annað skemmtilegt. Væri gaman að heyra ferðasögu.

Ég væri alveg til í eitthvað skemmtilegt en verð vístl láta mig nægja á næstunni að kíkja á youtube og láta mig dreima.
Hér er eitt töff skíðamyndband

Svo þið sem eruð að massa klifrið þá er hér ein síða sem ágætt er að kíkja á http://climbing.tropic.org.uk

Myndir frá Sólheimajökli

Annað 4 feedbacks »

Link: http://www.flickr.com/photos/avarab/sets/72157615839547996/

Kristján á Sólheimajökli

Ég setti myndir frá Sólheimajökli á flickr.

Endilega tengja í önnur myndaalbúm frá þessari síðustu ferð okkar í B2.

Contact. ©2010 by admin. blog software / web hosting / monetizing.
Design & icons by N.Design Studio. Skin by Tender Feelings / Evo Factory.