gerðum góða ferð um helgina og gengum á þrjá tinda í bókinni góðu. Því til sanninda eru hér slóðar á mynd úr hverri ferð.
og Hafursey, sem er fjall sem kom á óvart.
Sælt veri fólkið
Eins og sumir hafa eflaust tekið eftir sendum við Helgi póst á Sjálfheldumeðlimi varðandi útilegu í júní.
Í framhaldi af því hefur verið ákveðið að stofna til Sjálfheldu/útskriftar-útilegu fyrstu helgina í júní, dagana 5.-7. júní.
Þá erum við að tala um merkja lausa ferð svo menn gætu kannski fengið sér smá sopa á kantinum þegar færi að kvölda og Alien væri kominn með gítarinn í hendina. Taka almennilega lúxus útskriftar B2 útilegu á þetta, og með okkar nánustu auðvitað. Semsagt, kick starta almennilega sumrinu einhversstaðar. Franski ferðamaðurinn hefur sömuleiðis talað um að mæta á bátnum með sundhettubrjálæðingnum og hoppa niður fossa.
Staðsetningar eru opnar og vel tekið á móti hugmyndum. Okkur Helga datt í hug Þjórsárdalurinn. Bogga kom með þá ábendingu að hafa þetta í hóflegri fjarlægð frá bænum. T.d. kæmi Laugarvatn, Apavatn, Úthlíð, Úlfljótsvatn og fleirri staðir til greina. Hugmyndin var að hafa jafnvel tvo þrjá staði og sjá svo til með veður.
Gaman væri að sjá hversu margir gætu komið þessa helgi og endilega komið með hugmyndir að áfangastað.
Kveðja, Fransbrauðið og Sundhettan
Í kvöld, mánudagskvöld, er leitartækniæfing með þemanu:
Leit í og við ár og vötn.
Þetta er samæfing leitarhópa á svæði 1. Brottför frá Flugvallarvegi klukkan 19 og stendur B2 meðlimum til boða að mæta og taka þátt, örugglega mjög lærdómsríkt.
Endilega gefið comment.


Recent comments