Fréttamaður Heldunnar var staddur í Freysnesi þar sem hann rakst á Helga M. nokkurn úr B2 þar sem hann var með hnútakennslu fyrir gesti og gangandi á Hótel Skaftafelli.
Þetta hnútanámskeið sem um ræðir var víst kennt í fyrra af Magga þegar hann fór á Hnúkinn og vakti mikla lukku.
Helgi var þarna ásamt tökuliði í heimildarmyndinni sem fjallar um för móður Helga á Hnúkinn. Förinni á Hnúkinn hafði þegar verið frestað um sólarhring en reyna á að fara aftur upp á sunnudagsmorgni. Vonandi gengur þeim allt í haginn en ekki náðist tal af Helga þar sem hann var upptekinn að fara yfir helstu hnútana með miðaldra konum.
Jæja, já. Veðurspáin heldur verið að versna og skemma fyrir mér planið. En alla vega, stefnan er sett norður á Tröllaskaga (tvær nætur í húsi á Siglufirði). Planið er þrír tindar (í bókinni), einn á dag í þessari röð: Spákonufell, Hestaskarðshnjúkur og Hreppsendasúlur. Til vara eru, reynist veðrið betra og við sprækari, Tindastóll og Seldalsfjall. Lagt verður af stað á laugardagsmorgni. Hafi menn eða konur áhuga á að skreppa með, er það velkomið, tvö (eða þrír mjög sáttir) laus sæti í bílnum. Snjólflóðabúnaður æskilegur.
Jæja gott fólk nú líður senn að útskriftar útilegunni góðu (verst að við verðum trúlega ekki formlega útskrifuð), Eru ekki örugglega allir sem ætla að mæta og eru ekki makar og börn velkomin?, Eru ekki flestir á að fara í Þjórsárdalinn ef veður leyfir? Ég er allavega farinn að hlakka til...
Heyrst hefur að Alien, Predator og Geir Ólafs mæti og taki úrkynjaða útgáfu af "Svaraðu" eða "Svaraðu, fokking kallinu" eins og lagið er kannski betur þekkt sem..
Kv.
Gaz-man
Þriðjudagskvöldið 26.maí mun Lárus Petersen sjúkraflutningamaður og flubbi fjalla um háorkuáverka og ofkælingu. Lárus hefur starfað sem sjúkraflutningamaður lengi og hefur mikla reynslu í þeim málum. Fyrirlesturinn verður í fyrirlestrarsalnum á Flugvallarvegi og hefst kl 20.00.
Ævar, Gummi og Bjössi fengu sig og hífingu hjá Gæzlunni í dag.
Ég öfunda þá ekkert ...![]()
From Gæzlan og Ársæll

Recent comments