Jæja gott fólk
Þetta er nú svolítið seint að koma með þennan póst núna.
En mér leikur forvitni á, er enginn frá sjálfheldunni að fara í mörkina núna um helgina?
Ég veit að Agnes er núna einhverstaðar á laugarveginum á leiðinni í mörkina, Við bræðurnir ætlum að bruna strax eftir að dýrið á grillinu hjá Steinari verður búið. Mér skilst að Stjáni og Guðrún muni fylgja okkur eftir. Matti skratti og frú verða pikkuð svo upp á leiðinni.
En mig langaði annars bara að segja að ef einhverjum langar að fljóta með eftir grillið þá bara hafa samband í okkur og við finnum fyrir ykkur sæti.
B1 BESTIR !
við höfum ekkert í þaug áfram B1 !!! þið eruð best !!
Flugbangsar.com
Hinir krúttlegu og yndislegu nýliðar í Flubbunum. Geta allt, skilja allt, vita allt og kunna allt sama hvað sem inngengnir segja
![]()
![]()
Sæl Öll
Þá er komið að því að við þurfum að fara að fá skráningu í básagæslu þetta sumarið viljum við helst fá það strax upp á borðið hvenær fólk ætlar að vera. Þar sem að það auðveldar alla skipulagningu.
Þær helgar sem þarf að manna eru eftirfarandi
26-28 júní
3-5 júlí
10-12 júlí
17-19 júlí
24-26 júlí
31 júlí-3 ágúst
7-9 ágúst
Skráning fer fram hjá
Ásgeir í síma 861-2998 eða Bubba í síma 695-5407
Þeir sem ekki skrá sig á helgar verður úthlutað helgum Wink
Kveðja
Stjórnin
Sæl veriði og takk fyrir síðast.
Ferðin um síðustu tókst vel í alla staði og fór stórslysalaust fram. Ein góð helda frá Háafossi hér.
Eins og fólk væntanlega veit á það að taka föstudaginn 3ja júlí frá en þá ætla Steinar og Svanur að halda útskriftarteiti fyrir okkur ![]()
Hvernig er annars planið hjá fólki? Hérna fyrir neðan er það sem ég hef verið að heyra fólk tala um og ætla mæta á.
Einhverjir úr Heldunni taka þátt í Laugavegshlaupinu 18. júlí og auðvitað verður Sjálfheldan á svæðinu til að styðja sitt fólk.
Helgina eftir hafa svo einhverjir ákveðið að vera fyrir norðan í Ásbyrgi þegar Jökulsárhlaupið fer fram þann 25. júlí.
Svo til að bæta ennþá ofaná dagskránna verða meiri að segja fulltrúar frá Sjálfheldunni í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina, þ.e. allavega á sunnudeginum í brekkusöngnum hjá Árna og halda áfram að syngja lögin sem sungin voru um helgina í Sandártungu við undirleik Heimis og Agnesar.
Um næstu helgi er hin magnaða og langþráða útskriftar-útilega B2. Stefnan er tekin uppí Þjórsárdal og er reiknað með að base campa þar, nánar tiltekið á Tjaldsvæðinu við Sandártungu.
Áætlað er að hittast rétt fyrir kl. 19 á föstudaginn á bílastæðinu við Olís í Norðlingaholti (Quiznos megin) og leggja af stað útúr bænum kl. 19.00 á einkabílum. Hugmynd er að borða á KFC á Selfossi eða grípa pulsu í sjoppunni þar.
Föstudagskveldið fer síðan í að koma sér fyrir, hita kannski aðeins upp gítarinn og semja 2-3 lög fyrir kvöldvökuna kveldið eftir.
Þegar menn koma sér á fætur á laugardeginum er svo plan að kíkja á svæðið í kring, rúnta að fossunum , Háafossi og Granna (treysti á að Haukur og Stefán séu með í för til að guida), taka fjallið hans Hauks líka, Hagafjall, og ég get ekki betur séð skv. þessari síðu að það sé útisundlaug í Þjórsárdal sem væri eflaust mjög gott að líta í eftir eitthvað sprell.
Um kvöldið er svo málið að taka alvöru kvöldvöku sem hæfist á sameiginlegu grilli þar sem allir koma með kjöt við sitt hæfi og borðað saman sem síðan færðist yfir í opin skemmtiatriði og gítarleik.
Af hverju Þjórsárdalur? „Þjórsárdalurinn býr yfir mikilli náttúrufegurð og er fullt af fjölbreyttum gönguleiðum í boði þar. Einnig er hægt að skoða sögufræga staði frá landnámsöld sem og náttúruundur eins og Háafoss, annan hæsta foss á Íslandi. Það er því nóg að skoða fyrir þá sem að nenna ekki að liggja í leti allan tímann.“
Það sem þú þarft að gera :
· Láta vita hvort það ætli ekki að mæta og hve stórt fylgdarlið.
· Kaupa eitthvað til að borða í sameiginlega grillinu + annað yfir daginn
· Koma með sund-dót
· Láta vita ef það á svona samkvundutjald eða hefur aðgengi að slíku til að hýsa kvöldvöku ef það er aftakaveður.
· Finna til gömlu frisbee diskana, kricket settið, söngbækurnar, vindsængina og annað sem er ómissandi í útileguna.
· Það á eftir að ákveða hvernig við græjum grillið sjálft, þ.e. hver kemur með kol o.s.frv. en það leysist fyrir helgi.
Praktískar upplýsingar og FAQ (sumt fengið að láni af bloggsíðu):
· Verð á tjaldsvæði: 700-750 kr. nóttin fyrir hvern fullorðinn en frítt fyrir börn yngri en 12 ára
· Áfengi: Það verður ekki bann við því í þessari ferð, enda ferðin ekki undir merkjum sveitarinnar.
· Aðstaða: Kalt vatn, vaskar og salerni .
· Leiktæki: Frumleg og skemmtileg en fyrir vikið svolítið varasöm fyrir suma …..
· Umhverfi: Mjög fallegt og skemmtilegt umhverfi …..
· Fjarlægð/tími frá Reykjavík: Það tekur tæplega eina og hálfa klst. að aka frá Reykjavík og að Sandártungu í Þjórsárdal, miðað við venjulega umferð.
· Gott ráð: U.þ.b. 15 min áður er komið er í Sandártungu er komið að litla samfélaginu Árnesi. Þar er N1 bensínstöð þar sem hægt er að fá ókeypis bæklinga og kort um allt það sem áhugavert er að skoða í Þjórsárdal.
· Ég kemst ekki alla helgina , hvað þá? Auðvitað kemurðu og verður bara með eins og þú getur.
Vonumst til að sjá sem flesta og ef það kvikna einhverjar spurningar, þá bara commenta á heldunni ..
Líst fólki ekki vel á ?
kv. Nefndin

Recent comments