Gæsla í Básum fellur niður núna um helgina.
Of mikið í ám og þar af leiðandi lítið af fólki innfrá.
En skrifstofa Útivistar vill vera í sambandi við okkur um gæslu næstu helgi.
14. ágúst - 16. ágúst
Þeir sem eru lausir vinsamlegast skrá sig.
Á vegum Flugbjörgunarsveitarinnar er stefnt að því að skreppa í
þriggja daga trússaðan (lúxus) hjólatúr um svæðið í kringum Lakagíga á
Síðu. Svæðið býr að mikilli náttúrufegurð, góðum malarvegum (að
slepptum smá sandkafla á degi 2), lítilli bílumferð og nokkurs fjölda
skála. Dagleiðir verða lengstar 68 km, en til gaman má geta að í
Heiðmerkurtúr sveitarinnar snemmsumars fóru flestir vel yfir 40 km á
einni kvöldstund.
Fyrirkomulag: Farið verður á Ford og öðrum sveitarbílum (fer eftir
þátttöku) austur. Ferðalangar skulu taka með sér tjald auk hefðbundins
viðlegubúnaðar, þó svo að gist verði líklega í skálum a.m.k. aðra
hvora nóttina (og greiða hófleg skálagjöld sjálfir). Þeir skulu
jafnframt hafa með sér vatnsbrúsa og dagsnesti. Annars mun Fordinn
fylgja hópnum með annan farangur.

Dagur 1. (Gulur 12 km) Lagt af stað frá Flugvallarvegi kl. 17. Keypt
verður á leiðinni sameiginlega inn fyrir grillmáltíð á
laugardagskvöldið. Annan mat þurfa þátttakendur að koma sjálfir með.
Étinn verður kvöldverður á leiðinni. Um kl. 21 verður komið að
afleggjara frá hringvegi að Hunkurbökkum og hefst ferðin þar. Haldið
verður norður Lakaveg, en gert stutt stopp til að ganga niður að
Fjaðrárgljúfri. Síðan verður haldið upp brekkur norður á bóginn þar
til komið er að fornu eyðibýli við Eintúnaháls (12 km), en þar verður
slegið upp tjöldum fyrir nóttina (mönnum er einnig frjálst að gista í
"skálanum". Ef menn eru sprækir má halda áfram ferðinni í Blágil (37
km), hvar híbýli eru nokkuð vistlegri.
Dagur 2. (Rauður 68 km) Eftir morgunverð við Eintúnaháls er hjólað
norður á bóginn. Geirlandsá er vaðin (30 km) og Fagrifoss skoðaður.
Vaða þarf líklega Hellisá og jafnvel Stjórn áður en komið er að
afleggjaranum í Blágil (35 km) en þangað er 2,5 km spotti og gott að
snæða hádegisverð þar með aðgang að vatni, skála og salerni eftir
þörfum. Eftir hádegismat er aftur farið út á Lakaveg (40 km) og komið
að fjallinu Laka (55 km) en upplagt er að taka útsýnisferð upp á
fjallið, skoða hella og gosmyndanir. Þaðan er stefnan tekin fyrst í
vestur og svo SSV meðfram gígaröðinni, gönguleið á milli gíganna
hjóluð (60 km) og haldið áfram þar til komið er í gangnamannaskálann
við Hrossatungur (80 km) hvar grillað verður og gist.
Dagur 3. (Grænn 25 til 55 km) Frá Hrossatungum er haldið suður á
bóginn, fram hjá gagnamannaskálanum við Leiðólfsfell (95 km) og inn á
línuveg og Hellisá vaðin í annað sinn. Fljótlega eftir Hellisá er
beygt suður (100 km) í Skaftárdal á meðan Ford heldur línuveg áfram og
hittir hópinn aftur við hringveg á leiðinni niður í Skaftárdal.
Hjólreiðamenn koma hins vegar í Skaftárdal (105) og yfir Skaftá og inn
á Fjallabaksleiðir og fylgja þeim niður á Þjóðveg 1 (125 eða 135 km).
Áhugasamir setji sig í sambandi við Bubba í síma 695 5407
Fulltrúar Sjálfheldunnar komu Heldunni á blað um þarsíðustu helgi:
Eru Heldumenn ekki með nokkra fulltrúa í Laugavegshlaupinu um helgina?
Þeir sem ég hef heyrt af eru Bogga, Stefán og Maggi.
Sjálfur er ég með veðbankann inní Langadal meðan hlaupið stendur yfir.
Blessuð
Var að spjalla aðeins við Bubba...
Það fer að styttast í næstu helgi, það eru þrír skráðir í gæslu í básum. Einn af þeim er Emil og aðstæður hjá honum hafa breyst þannig að hann kemst ekki. Ég (Guðni) er einnig skráður en væri til í að komast með félögunum í rafting fyrir norðan. Það er nú ekki oft sem sófakóngarnir félagar manns ákveða að fara í raftingferð þannig að ég vil helst ekki missa af því.
Ef við Emil dettum út þá er bara einn skráður og það þarf lágmark 4 manns.
Hafa samband við Bubba 695-5407 eða Ásgeir Sig. 861-2998

Recent comments