Esjuferðin

Ferðasögur 4 viðbrögð »

Karlaklúbbur B2 fór í sína fyrstu ferð í gærkveldi. Klúbburinn sem ber heitið „Testósterón“ fór létta gönguferð upp Esjuna og settu upp aðal- og öryggislínu í efstu hæðum. Hlaupið var uppá toppinn á 45 mínútum í þungu færi með Magga fremstan.

Eitthvað var um fólk á gangi á sama tíma sem flest hætti ferð sinni þegar það fékk lúkkið frá Stebba. Það var kalt en ekkert sem Testósterónið þoldi ekki.

Á toppnum var skrifað í gestabókina og strax farið í að setja upp kerfið sem var mjög lærdómsríkt og gott til upprifjunar.

Þetta var samtals 5 tíma ferð en við töfðumst aðeins á niðurleiðinni við að bjarga 2 konum úr sjálfheldu.
Atli og Gilsi báru þær niður til að flýta fyrir.

„Testósterón“ hyggst fara í fleiri ferðir á næstunni en þær standa auðvitað öllum karlmönnum B2 til boða.

Týndur í Tindfjöllum

Annað 11 viðbrögð »

[youtube]nJ-8xd5QSuM[/youtube]

Tindfjallaferð 30.01.09

Annað 30 viðbrögð »

Er ekki ágætt að fara að spá í tjaldaskipulag og búnaðar reddingar. Mig vantar t.d. tjaldpláss, snjóflóðastöng, skóflu og ýli ef einhver gæti mögulega lánað sem fer ekki í ferðina..

Út að leika á laugardaginn

Annað 5 viðbrögð »

Ég ætla að minna á að á laugardaginn nk. er fyrirhugað að fara niður í Tintron. Tintron er gervigígur eða hraunketill sunnan við Gjábakka í Þingvallasveit nærri veginum að Laugarvatni. Hann er mjög djúpur með strýtulaga uppvarpi yfir opinu. Ég er ekki viss hversu djúpur hann er en einhversstaðar á bilinu 10-20 m. Því er þetta tilvalið tækifæri sem vilja spreyta sig í sigi og júmmi að koma með.
Mæting er á Flugvallavegi fyrir kl. 13:00 þar sem sameinað verður í bíla.

Þeir sem hafa nú þegar tilkynnt sig í ferðina eru:
Bogga
Stefán gjaldkeri
Ólöf
Ævar
Maggi
Gilsi
Helgi
Steinar (fer eftir skíðafæri)
Doddi er heitur

Hvað er athugavert við þessa mynd?

Annað 5 viðbrögð »

Contact. ©2010 by admin. blog software / web hosting / monetizing.
Design & icons by N.Design Studio. Skin by Tender Feelings / Evo Factory.