Hlíðarfjall um helgina

Annað 38 feedbacks »

Link: http://www.akureyri.is/media/ymislegt/Hlidarfjall_hotel.jpg

Við erum að fara í skíðaferð til Hlíðarfjalls um helgina:

Vegna bágborinna snjóalaga höfum við slaufað gönguskíðaferðinni og förum þess í stað norður á Akureyri á skíði. Mæting verður kl. 19:00 á föstudagskvöldið og brottför klukkutíma síðar. Gist verður í tjöldum.

Allir skulu útbúnir snjóflóðabúnaði, svo við getum skipulagt einhverja óvissu.

Þetta er kjörið tækifæri til þess að taka gönguskíði líka með og æfa sig á þeim. Fjalla og telemarkskíði eru líka sérstaklega heppileg.

Við förum sennilega ekki á einkabílum eins og við sögðum á fundinum í kvöld. Læt ykkur vita ef það breytist.

Tetra í kvöld

Annað viðbrögð: 1 »

Tetra námskeið í kvöld niðrí sveit kl. 20 kl. 19.
Allir að mæta.

Fróðleikur dagsins:
Af vef dómsmálaráðuneytisins:
Þegar litið er á þróunina innanlands, ber fyrst að geta þess, að ríkisstjórnin ákvað hinn 26. september 2006, að innleitt yrði tetra-kerfi til að þjóna sem neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi alls staðar á landinu. Ákvörðunin var kynnt í tengslum við brottför bandaríska varnarliðsins. Hún féll vel að nýjum kröfum til aukins innlends öryggisviðbúnaðar og hefur verið framkvæmd á markvissan hátt.

Fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins hefur Neyðarlínan haft forystu um að hrinda þessari ákvörðun í framkvæmd. Neyðarlínan samdi við fyrirtækið Motorola um uppfærslu á miðbúnaði tetra-kerfisins, sem hafði verið starfrækt í nokkur ár, auk þess voru 150 nýir sendar keyptir og komu þeir að nokkru í stað eldri búnaðar.

Á síðasta ári voru 133 sendar virkir í tetra-kerfinu. Á þessu ári koma 25-27 nýir sendar til sögunnar. Við svo búið má segja, að ekkert annað fjarskiptakerfi sé hér með sambærilegan þjónustustyrk. Heildarkostnaður við uppbyggingu kerfisins verður nálægt 900 milljónum kr. eða eins og áætlað hafði verið.

Tetra-talstöðvar eru nú á fjórða þúsund. Er það talsvert hærri tala en ráð var fyrir gert, þegar ýtt var úr vör. Þegar allir notendur hafa að fullu komið sér upp búnaði er reiknað með, að hátt í 7000 talstöðvar verði í notkun. Þessi mikli áhugi á því að eignast talstöðvarnar er í raun bestu meðmæli með tetra-kerfinu.

Skautaferð..!!

Annað 29 viðbrögð »

Það kom upp sú hugmynd um daginn í Tintron ferðinni að kíkja í skautaferð. Þannig að nú er tækifærið að dusta rykið af gömlu góðu skautunum og rifja upp snúninginn og drífa sig af stað....

Það er bara spurning hvenær menn vilja fara það er svolítið skrýtinn opnunartími á þessum 2 stöðum sem í boði er en helsti möguleikinn fyrir okkur væri að fara annaðhvort í Egilshöllina á miðvikudegi þá er opið frá 17-19 eða í Laugardalinn á fimmtudegi frá 17-19.30 eða föstudag þá er opið til 20.00 á báðum stöðum

Er ekki málið að drífa sig á morgun, fimmtud eða föstud...

Gönguskíði

Annað 11 viðbrögð »

Jæja þá er komið að fyrstu gönguskíðaferð ársins. Spáinn örlítið betri þó blautt gæti orðið en fyrsta ferð okkar fyrir ári. Hver man ekki eftir Tindfjallaferðinni -23° og 25m á sek þar sem sumir máttu vel við una að ná að halda sér á jörðinni.

Við eigum að vera með tjöld og því ráð að skrá sig hér saman í tjöld. Einnig vil ég minna á það að vera vel búin um helgina hvað varða hælsæri og önnur fótamein því ég man að sumir fengu mjög slæm hælsæri eftir gönguskíðaferðirnar í fyrra.

Kv
Bogga

Mánuður í árshátíð

Partý 14 viðbrögð »

Það er farið að styttast í hið árlega uppgjör sveitarinnar.
Nú er pressan öll á B1 að toppa atriðið okkar frá því í fyrra svo við getum setið róleg og haft gaman af.
Skv. plani er árshátíðin 7. mars svo menn verða að passa að halda þeirri dagsetningu til haga.

Contact. ©2010 by admin. blog software / web hosting / monetizing.
Design & icons by N.Design Studio. Skin by Tender Feelings / Evo Factory.