| « B1 eru bestir :D | Dagskráin í sumar? » |
Jún
25
Sæl Öll
Þá er komið að því að við þurfum að fara að fá skráningu í básagæslu þetta sumarið viljum við helst fá það strax upp á borðið hvenær fólk ætlar að vera. Þar sem að það auðveldar alla skipulagningu.
Þær helgar sem þarf að manna eru eftirfarandi
26-28 júní
3-5 júlí
10-12 júlí
17-19 júlí
24-26 júlí
31 júlí-3 ágúst
7-9 ágúst
Skráning fer fram hjá
Ásgeir í síma 861-2998 eða Bubba í síma 695-5407
Þeir sem ekki skrá sig á helgar verður úthlutað helgum Wink
Kveðja
Stjórnin
Reyni samt að mæta þegar og ef ég get, ég lofa !
Sjúkraæfing Skyndihjálparhóps Rauða Kross Íslands með þátttöku FBSR verður haldin laugardaginn 27. júní frá kl. 11.30 til kl. 15.00/16.00
Það vantar um það bil 8 sjúklinga, mæting á Laugaveg 120 (við Hlemm), kl 11:30 í/með föt sem má skemma. Æfingin sjálf verður svo í gilinu við Keiluhöllina í Öskjuhlíð. Sagan er sú að flugvél með allt að 15 manns innanborðs brotlendir í Öskjuhlíðinni á leið til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Veðurspáin er góð eins og er.
Útkallið verður kl. 13.00 ef FBSR fólk vill vera í sjúkraliðinu þarf það að mæta á planið við Keiluhöllina kl. 13.15 svo að hóparnir verði þar á svipuðum tíma.
Þetta er einstaklega gagnleg æfing þannig að sem flestir eru hvattir til að taka þátt.
Skráning með nafni og kennitölu til Addýjar (Ásgerður Einarsdóttir), gsm 865-6026 eða gvendolinajons@yahoo.com, fyrir hádegi á föstudaginn 26. júní nk. en helst fyrr ef hægt er.
Varðandi sjúkraæfinguna þá er ég að fara vinna á laugardaginn þannig að ég kemst ekki. Þar fyrir utan verð ég í bílskúrnum líklega alla helgina þannig að ég kemst ekki í básagæslu.
Varðandi Básagæsluna þá var ég búinn að nefna við Ásgeir að vera í gæslu helgina 10.-12. Júlí. Ég stefni á að vera út í mörk í skemmtiferð 3.-5. júlí. Það má hins vegar skoða fleirri helgar í gæslu þegar nær dregur.
Kv. Guðni
annars er helgin 10.-12. júlí óráðstöfuð ... þannig að ef uppá vantar í mannskap þá get ég alveg hlaupið í skarðið.
Brynjólfur það verður flott að sjá kunnuleg andlit í Húsadal þegar sjálfheldufarar koma af Laugaveginum.