Sjálfhelduútilega

Annað 8 viðbrögð »

Hin árlega retro útilega Sjálfheldunnar verður haldin 4.-6. júní að Kverná rétthjá Grundarfirði.

Allt Sjálfheldufólk + fjölskyldur + inngengnir eru velkomnir með.

Vinsamlegast skráið ykkur í kommentakerfinu

Jæja gott fólk

Annað 13 viðbrögð »

Eitthvað er adrúmsloftið farið að daprast á þessari síðu.

En ég ætla nú ekki að ræða það mál. Heldur ætla ég að snúa mér að mun mukilvægari viðburði.

Nú er farið að styttast óðfluga í fyrstu helgina í júní og er því auðvitað stefnan að skella sér í útilegu þá helgi. Eigum við að stefna að sama stað í sandártungum eins og í fyrra eða eru aðrar hugmyndir (heyrist að fólk sé samt sátt við síðasta stað)

En nú er orðið laust, hverjir ætla að mæta og hvert viljið þið fara?

kv.

Brynjólfur

Telemark festival 2010

Partý 6 feedbacks »

Hið margrómaða og margumtalaða Telemarkfestival verður haldið í Hlíðarfjalli að venju. :D
Hver sá sem þangað hefur mætt veit að Telemarkfestivalið er eitthvað sem ekki má missa af. 

Dagskrá Telemarkfestivalsins er hefðbundin enda óþarfi að breyta því sem alltaf heppnast vel.

  • Föstudagur 13. mars: Skíðað í flóðljósum og mittisdjúpu.
  • Laugardagur 14. mars:  
    Hin alræmda, samhliða svigkeppni setur sitt mark á daginn auk búningakeppni einstaklinga og liða. Svigkeppnin er með útsláttarformi sem gerir hana æsispennandi. Nánari tímasetning á skráningu og starti í keppni væntanleg.
    Um kvöldið verður haldið veglegt Telemark-hóf þar sem nóg verður af mat og drykk og dansi. Veglegir vinningar verða dregnir út og verðlaun veitt sigurvegurum í keppnum dagsins. Garðbæingar munu sjá um verðlaunaafhendinguna.
  • Sunnudagur 15. mars : Skíðað með frjálsum stíl (í mittisdjúpu).

 


Nákvæmar tímasetningar á einstökum dagskrárliðum munu verða auglýstar er nær dregur. 

Til að auðvelda alla skipulagningu þá er mikilvægt að þeir sem ætla að mæta í hófið um kvöldið skrái sig hér á heimasíðu ÍSALP. Ekki er nauðsynlegt að vera meðlimur í ÍSALP til að vera með. 
Þeir sem eru ekki meðlimir í ÍSALP þurfa samt að skrá sig á Ísalp síðuna og til að koma í veg fyrir að fá sendan gíróseðil þá er best að skrifa "Telemarkfestival" í athugasemd með skráningunni. 
Ef einhverjar spurningar vakna vegna skráningar er velkomið að hafa samband við Sveinborgu/ sveinborg (at) hotmail (punktur) com

_______________________________________________________________________

Heyrst hefur að Axel ætlar að stíga á planka að hætti normanna þessa helgi og er því þjóð ráð að finna sig til, fjölmenna og mæta á staðinn og hvetja drenginn. 

Búin að panta íbúð við Ráðhústorgið hjá kennarasambandinu í nafni Boggu, Vúhú!!! Bogga er s.s. Hótelstjórinn og mun sjá um bókanir í gistingu (eða skrá sig á eventið á Facebook). Heyrst hefur að aðsóknin er mikil og sé allt að fyllast og því ætti fólk að hafa hraðar hendur ef það ætlar að fá gistingu.  

Íbúðin er 100m² á 2. hæð. Íbúðin er með 3 svefnherb. Tvíbreið rúm eru í tveimur herbergjum og einbreitt rúm í einu. Svefnpláss í rúmum er fyrir 5 manns. Einnig eru í íbúðinni 2 aukadýnur. Nóg gólfpláss. Salerni er með baðkari (einhver getur sofið þar) og sturtu. Þvottavél og þurrkari er við íbúðina.

Hugmyndir eru uppi um búninga en umræður um þá fara leynilega fram á eventi á Facebook. Þeir sem hafa áhuga á þeirri umræðu og hafa ekki verið boðið á atburðinn endilega tilkynnið um slíkt hér að neðan.

Ætlar þú á festivalið? og/eða hefur þú áhuga á að fara á hófið á laugardagskvöldið? ef svo er endilega segðu þína skoðun.

Hvað er að frétta?

Fréttir 9 feedbacks »

Fannst vera kominn tími á einhverja steypu frá mér hérna.

Hvað er að frétta af Heldunni?

Er komið plan að páskaferð hjá nýliðunum í B2 :D ?

Þarf ekki að byrja plana hina árlegu ferð Heldunnar fyrstu helgina í Júní? Ferðin í fyrra var nátt perfect í Sandártungu þar sem lókallinn hann Stebbi átti svæðið.

Annars er ég nokkuð góður hér í útlandinu og sé ekki frammá neina heimkomu fyrr en í sumar.

kv. Helgi

Helgi á svölum vetrardegi í góðri teygju

Sprungur á Langjökli

Annað Send respons »

Tengja http://www.youtube.com/watch?v=LS_52OnhpRU

Í framhaldi af umræðu í hádegismatnum um jeppamenn og sprungur.

Sjáið sérstaklega frá 4:45 og næstu mínútu. Svolítið kærulausir þessir jeppamenn stundum gangandi á miðjum sprungum.

Contact. ©2010 by admin. blog software / web hosting / monetizing.
Design & icons by N.Design Studio. Skin by Tender Feelings / Evo Factory.