Framundan er skemmtilegasta ferð bjé tveggja... ever. Reiknað er með að farið verði í loftið uppúr 19 á föstudagskveldið en fyrirpartí er áætlað frá kl. 16.00 þar sem gott er að hita sig upp með nokkrum köldum.
Hér er mynd frá útskriftarferðinni fyrir nokkrum árum þegar t.d. Emil (fyrir miðri mynd) gékk inní sveitina. Eins og þið sjáið borgar sig að vera með góða sólarvörn og helst ekki of vel klæddur.

Allir að muna eftir dýnu fyrir ströndina líka. Ég hef ekki prófað að sofa í bívak á strönd en það er allavega gott kreppuráð fyrir þessa Benidorm ferð. Munið að ekki er heldur mælst með að menn séu að fara í klifurbeltunum með handsprengjurnar inní flugvél, það kallar bara á vandræði.
Ef einhverjir hafa verið í veseni með að redda sér gjaldeyri þá er líka fínt að taka með sér nokkrar línur og betla pening með sigi eða svipuðum fjallabjörgunaratriðum. Ævar tekur líka einhjólið með sér og þar er trygg tekjulind.
Það er líka mikið gleðiefni að B1 ætlar að vera okkur innan handar með Mexíkana hattinn sinn og smyrja okkur áður en við leggjumst á ströndina.

B1 í sjálfheldu?
Vitið þið hugsanlega um einhvern sem gæti lánað bívak fyrir Hell Weekend, einhver sem þið þekkið kannski og myndi tíma að lána (ekki nema eitthvert ykkar eigi 2) vitið þið annars hvað svona græja kostar...
Kv.
Gilsi
Jæja.. er ekki kominn tími á einhverja smá umræðu og skipulagningu hjá okkur fyrir helgina frægu. Ég veit svosem lítið um þetta enda á maður að búast við hinu óvænta.
Reikna með að allir séu meira en klárir í þetta. Eigum við kannski að byrja að skrá hverjir ætla að mæta og ræða hvaða tjöld eru til taks. Þetta á eftir að reyna á flest ef ekki allt sem við höfum lært svo það borgar sig að vera með allt á hreinu fyrir þetta.
Hvað með karabínu-status og slíkt? Ætli við fáum svoleiðis lánað frá sveitinni? Svo væri mjög fínt ef einhver gæti verið með aukapar af sokkum fyrir mig. En þetta kemur allt betur í ljós þegar nær dregur.
Vildi allavega starta einhverri smá umræðu um þetta.

Laugardaginn 15. nóv ætlum við að heiðra hina ævafornu hefð að koma saman í bragganum með kassa. Sú breyting verður höfð á í ár að hafa þemað kreppuna miklu sem allir hafa orðið varir við. Íslenskur bankaklæðnaður verður því skilyrði og verða þeir, sem mæta í glæsikerrum, heiðraðir sérstaklega. Mæting verður að hefðbundnum tíma milli 8 og 9.
Peningakveðja,
Skemmtinefndin
PS. Við erum sérstakelga spenntar að fá Mumma í partýið en eins og glöggir vita stökk hann nokkur stökk í Flórída fyrr á árinu. Þá eru aðrir skuldarar hjartanlega velkomnir.
Kassapartý! Já fínt, já sæll! TÉKKIÐ Á LINKNUM HÉR TIL VINSTRI!

Þar sem námskeið í leitartækni er á enda og einhverjir smitast af Sherlock Holmes sindrome fannst mér rétt að benda ykkur á síðuna hans SigÓSig, Sigga aðstoðarskólastjóra og yfirleiðbeinanda í leitartækni, ferðamennsku og rötun. Þar hefur hann safnað saman slatta af skemmtilegum upplýsingum, greinum, gátlistum, tengla og eyðublöðum um leitartækni, hegðun týndra o.sfr.
http://sigosig.wordpress.com/leit-og-bjorgun/
Inná síðuni hans er einnig hægt að lesa um frægustu leit á íslandi fyrr og síðar eða leitin af Charles Agli Hirt, en sú leit braut blað í sögu leitartækni á íslandi.
http://sigosig.wordpress.com/leit-og-bjorgun/leitin-að-cah/
Í útkallinu í síðustu viku, barst á tal að við ættum ekki nógu góð innanbæjarkort. Við hittum þó einhverja snillinga með ókeypis kort frá bensínstöðvum sem var ágætis kort. Ég og Bogga fundum dass af ókeypis kortum í ráðhúsinu og í túristamiðstöðinni við Ingólfstorg. Við fundum hins vegar bara kort af Reykjavík en ekki af höfuðborgarsvæðinu öllu.
Njótið vel.
Kv. Agnes Holmes
P.s. Ef þið eruð orðin advanced í leitartækni gætuð þið eflaust fundið inná síðuni hans Sigga myndir af mér hér í denn tid að dansa mín fyrstu spor í leitartækni á Björgunarmaðurinn 1 námskeiði.
:: Next Page >>
Hressandi Blogg B2 í FBSR.
| Next >
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | > >> | |||||
| 1 | 2 | |||||
| 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |